
Skóli fyrir öll
Aðgengi, inngilding, vellíðan og árangur að leiðarljósi
Skóli fyrir öll er hannað af Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur, menntatækni sérfræðingi og stofnanda HARTS, og er í gangi í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar.
Hvað er Skóli fyrir öll? Verkefnið byggir á rannsóknum um skólatengsl — þ.e. hversu mikið nemendur upplifa að þeir tilheyri skólasamfélaginu. Skólatengsl eru ein af öflugari verndandi þáttum í geðheilsu barna og ungmenna og tengjast beint betri námsárangri, betri mætingu og bættri líðan til langs tíma. Þegar nemendur upplifa að þeir tilheyri — gengur þeim betur í námi og jafnframt stuðlar að betri geðheilsu þeirra.
Verkefnið styður við taugafjölbreytta nemendur — þ.m.t. nemendur lesblindir, einhverfir, og með ADHD — með því að veita þeim aðgang að hjálpartækjum og tæknilausnum sem skapa jafngilt námsumhverfi. En eins og the curb cut effect sýnir: þegar við hönnum umhverfi með þarfir allra í huga, eykur það gæði umhverfisins fyrir öll.
Fræðslan samanstendur af fjórum þáttum:
-
Kennarafræðsla — taugafjölbreytileiki, skólatengsl, kennsluhönnun, hagnýtar tæknilausnir, og algild hönnun.
-
Nemendafræðsla — study smarter, not harder. Öll börn fá að kynnast hjálpartækjunum.
-
Foreldrafræðsla — hvernig foreldrar geta stutt við börnin sín heima með sömu tækjum.
-
Stuðningsefni — aðgengilegar leiðbeiningar um hvert hjálpartæki fyrir alla þátttakendur.
Fyrirlesari Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir sérhæfir sig í að þróa aðgengileg námsrými og er meistaranemi í heilsumenntun við University of Florida. Hún er sjálf lesblind, einhverf og með ADHD og útskrifaðist sem framúrskarandi nemandi frá University of Florida — án stúdentsprófs.
Sendið á jóhanna@harts.is til að fá fleiri upplýsingar
Foreldrafræðsla fer fram í Bæjarbíó þann 18. mars kl 19:30
