Fara í meginmál
HARTS

Netnámskeið

Úr því að þraukayfir í að dafna í námi

Netnámskeið fyrir foreldra og fagaðila barna með ADHD, einhverfu, lesblindu eða aðra námserfiðleika.

  • 7 einingar
  • 40 stutt myndbönd
  • Hjálpartækja-quiz
  • Á þínum hraða

Kannastu við þetta

Barnið þitt er klárt en einkunnirnar sýna það ekki

Skólinn segir að það nenni ekki eða reyni ekki. Heima sérðu kvíðann og sjálfstraustið minnka. Þú veist að eitthvað þarf að breytast en enginn segir þér hvernig.

Jóhanna í útskriftarkápu við útskrift frá University of Florida

Af hverju ég

Ég þekki þetta innan frá

Ég er einhverf, með ADHD og alvarlega lesblindu, og ég flosnaði upp úr framhaldsskóla.

Í dag er ég með tvær háskólagráður frá University of Florida og hef unnið með fjölda íslenskra skóla.

Munurinn var ekki að ég tæki mig á. Munurinn var umhverfi sem vann með mér en ekki á móti mér. Það er nákvæmlega það sem ég kenni þér að byggja fyrir þitt barn eða þína nemendur.

01Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir þig ef þú stendur barni nærri

  • Fagaðila

    Sem vilja betri innsýn í stóran hluta nemenda sinna og fleiri bjargráð fyrir þá.

  • Foreldra og fjölskyldur

    Sem vilja fara í gegnum námskeiðið saman, auka skilning og fá aðgang að bjargráðum.

  • Nemendur sjálfa

    Nemendur eru líka velkomnir, einir eða með foreldri.

02Einingarnar

Sjö einingar, um fjörutíu stutt myndbönd

Þú ferð í gegnum þær á þínum hraða, í hvaða röð sem er, og heldur aðganginum.
  1. Byrjunin

    Sagan mín, hver ég er og af hverju þetta námskeið. Þú skilgreinir þitt why og fyrir hvern þú ert að læra.

  2. Nemendurnir

    Taugafjölbreyttir nemendur, hverjir þeir eru og hvað einkennir þá. Kortlagningin byrjar á styrkleikunum.

  3. Að tilheyra

    Skólatengsl, óbeinu skilaboðin sem grafa undan þeim, námsnúningur og Tengslakeðjan. Hvernig ég komst í háskóla án stúdentsprófs.

  4. Námsumhverfið

    Aðgengilegt vs. inngildandi umhverfi, rampaáhrifin, algild hönnun (UDL), þrepastuðningur og þættirnir sem studdu mig.

  5. Hjálpartæki

    Tólf flokkar með sýnikennslu, frá upplestri og tal-í-texta yfir í stýrifærni, skynvænt umhverfi og gervigreind. Quiz sem finnur flokkana fyrir þitt barn.

  6. Einstaklingsmiðaður stuðningur

    Kortlagning styrkleika og hindrana, einhverfa, PDA og umbreytingar, stuðningur eftir aldri, sjálfsmynd og kvíði.

  7. Samstarfið og stóra myndin

    Samskipti við skólann og kennara, samantekt kortlagningarinnar og næstu skref.

03Eftir námskeiðið

Þetta getur þú þegar þú hefur farið í gegnum það

Ekki efnisyfirlit, heldur það sem þú ræður við á eftir og réðst ekki við áður.
  1. Útskýrt Tengslakeðjuna

    Og staðsett ákveðinn nemanda í henni, og vitað hvað hjálpar á hverjum hlekk.

  2. Endurrammað „erfiða“ hegðun

    Sem merki um hvar barn er statt í keðjunni, og brugðist við með trausti í stað krafna.

  3. Nálgast lestur á nýjan hátt

    Hjá barni með lestrarerfiðleika, með fimm meginreglum sem virka.

  4. Þekkt PDA-prófíl og umbreytingavanda

    Og beitt aðferðum sem létta álagið, heima og í skóla.

  5. Tekið hjálpartækja-quizið

    Og fengið flokkana sem passa þínu barni, með kennslumyndböndum um öll verkfærin.

  6. Sett upp þitt eigið kerfi

    Með Notion skapalóninu og uppsetningarleiðbeiningunum sem fylgja.

  7. Kortlagt styrkleika og hindranir

    Barnsins í skjali sem fylgir þér áfram, og fer beint í ráðgjöf ef þú vilt.

  8. Talað máli barnsins við skólann

    Með réttum orðaforða og tilbúnu tölvupóstsniðmáti.

04Umsagnir

Frá fólki sem hefur setið hjá mér

„Ég hef nýtt mér nokkur forrit sem þú fórst yfir fyrir mín börn og það hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif og þeim gengið betur með námið.“

Foreldri

„Fékk fullt af hugmyndum og verkfærum sem ég get byrjað strax í dag að nota.“

Fagaðili og foreldri

„Allt mjög skýrt. Það er hafsjór af allskonar hjálpartækjum svo það var frábært að fá lista yfir það sem þú hefur reynslu af að geti hjálpað.“

Foreldri

„Greinilega mjög fær í því sem þú ert að kynna og hefur þekkingu og upplifun sem fæstir kennarar hafa innan sinnar verkfærakistu.“

Kennari

„Þú býður upp á svo fallegt rými með nærveru þinni, safe space þar sem maður þorir að spyrja asnalegra spurninga!“

Þátttakandi á námskeiði

„Takk fyrir að gefa mér von og betri skilning á því hvernig ég var sem námsmaður í grunnskóla.“

Nemandi

„Ótrúlega peppandi að hlusta á þig, maður fer tvíelfdur út og tilbúinn að tækla vanda og fjölbreytileika!“

Þátttakandi á fræðslu

„Þú ert rödd beggja inn í skólakerfið, nemenda og foreldra, sem ég er ótrúlega þakklát fyrir.“

Foreldri

05Skráning

Tryggðu þér aðgang

Hér til hægri skráir þú þig. Til vinstri sérðu nákvæmlega hvað þú færð, hvað það kostar og hvað gerist næst.

Innifalið

  • 40 stutt myndbönd sem þú horfir á þegar þér hentar
  • Hjálpartækja-quiz sem bendir á verkfærin sem passa þínu barni
  • Kortlagningarskjal sem byggist upp í gegnum námskeiðið
  • Notion skapalónið með uppsetningarleiðbeiningum
  • Tölvupóstsniðmát fyrir samskipti við skólann
  • 45 mínútna kickoff með Jóhönnu, í persónu eða á Zoom
  • Valkvætt certificate of completion
  • Beinn hlekkur í ráðgjöf með kortlagninguna tilbúna, og forgangur þátttakenda

Verð

Fullur aðgangur
27.990 kr.
Hefur komið á námskeið hjá mér áður25% afsláttur
20.990 kr.

Kennarar og aðrir fagaðilar geta í mörgum tilfellum sótt um endurgreiðslu á námskeiðsgjaldinu í starfsmennta- eða endurmenntunarsjóð síns stéttarfélags. Kannaðu réttinn þinn hjá þínum sjóði — við sendum þér reikning sem hægt er að leggja fram.

Skilmálar

  • Ekki er boðið upp á endurgreiðslur. Ef eitthvað kemur upp á færðu inneign á næsta námskeið.
  • Afsláttur og fjárhagsstuðningur leggjast ekki saman við önnur kjör.

Hvernig þetta gengur fyrir sig

  1. Þú skráir þig hér og færð greiðsluupplýsingar í pósti.
  2. Aðgangurinn þinn opnast og þú skráir þig inn á harts.is.
  3. Kickoff með mér, í persónu eða á Zoom. Upptakan er send öllum.
  4. Þú ferð í gegnum einingarnar á þínum hraða, í hvaða röð sem er.

Kickoff

45 mínútur með mér, valkvætt

Þú velur tímann sem hentar á skráningarforminu. Upptakan er send öllum, líka þeim sem komast ekki.

  • Fimmtudagur 19. nóvemberAkureyriStaðsetning tilkynnt fljótlega
  • Þriðjudagur 24. nóvemberHörðuvallaskóli, Kópavogi
  • Miðvikudagur 3. desemberÁ netinuÁ Zoom
Skráning

Skráðu þig á námskeiðið

Fylltu út formið og ég set þig á listann. Þú færð staðfestingu og reikning í tölvupósti.

Upplýsingarnar fara beint til mín í tölvupósti. Vefsíðan geymir ekkert af þessu.

Það þarf að svara öllu nema því sem merkt er „má sleppa“.

Hvaða kickoff hentar þér?

Kickoff er 45 mínútur og er valkvæður — námskeiðið sjálft ferðu í gegnum á þínum hraða. Upptakan er send öllum.

Hvað á við þig?
Hefur þú komið á fyrirlestur hjá mér áður?

Þau sem hafa komið áður fá 25% afslátt.

06Algengar spurningar

Það sem fólk spyr mig mest að

Þarf ég að mæta einhvers staðar?
Nei. Námskeiðið er alfarið á netinu á þínum hraða. Kickoff-fyrirlesturinn er valkvæður, í persónu eða á Zoom, og upptakan er send öllum.
Hvað hef ég aðganginn lengi?
Lifetime access. Þú heldur aðganginum og færð allar uppfærslur á efninu.
Get ég fengið endurgreitt?
Nei, en ef eitthvað kemur upp á færðu inneign á næsta námskeið.
Má barnið mitt taka þátt með mér?
Já. Nemendur eru velkomnir, einir eða með foreldri.
Ég hef ekki efni á námskeiðinu, hvað geri ég?
Námskeiðið er styrkt af Menntamálaráðuneytinu og á skráningarforminu er reitur þar sem þú getur óskað eftir fjárhagsstuðningi, án útskýringa.
Ég kom á námskeið í fyrra, fæ ég afslátt?
Já, 25%. Merktu við það á forminu og ég sendi þér reikninginn með þínum kjörum.
Er efnið á íslensku?
Já, allt.
Fæ ég staðfestingu á að hafa lokið námskeiðinu?
Já, valkvætt certificate of completion með léttu lokaquizi.

Tryggðu þér aðgang

Skráningin er hér fyrir ofan. Þú færð staðfestingu í tölvupósti og reikning í kjölfarið.

Skrá mig á námskeiðið