Netnámskeið
Netnámskeið fyrir foreldra og fagaðila barna með ADHD, einhverfu, lesblindu eða aðra námserfiðleika.
- 7 einingar
- 40 stutt myndbönd
- Hjálpartækja-quiz
- Á þínum hraða
Kannastu við þetta
Barnið þitt er klárt en einkunnirnar sýna það ekki
Skólinn segir að það nenni ekki eða reyni ekki. Heima sérðu kvíðann og sjálfstraustið minnka. Þú veist að eitthvað þarf að breytast en enginn segir þér hvernig.

Af hverju ég
Ég þekki þetta innan frá
Ég er einhverf, með ADHD og alvarlega lesblindu, og ég flosnaði upp úr framhaldsskóla.
Í dag er ég með tvær háskólagráður frá University of Florida og hef unnið með fjölda íslenskra skóla.
Munurinn var ekki að ég tæki mig á. Munurinn var umhverfi sem vann með mér en ekki á móti mér. Það er nákvæmlega það sem ég kenni þér að byggja fyrir þitt barn eða þína nemendur.
Námskeiðið er fyrir þig ef þú stendur barni nærri
Fagaðila
Sem vilja betri innsýn í stóran hluta nemenda sinna og fleiri bjargráð fyrir þá.
Foreldra og fjölskyldur
Sem vilja fara í gegnum námskeiðið saman, auka skilning og fá aðgang að bjargráðum.
Nemendur sjálfa
Nemendur eru líka velkomnir, einir eða með foreldri.
Sjö einingar, um fjörutíu stutt myndbönd
Byrjunin
Sagan mín, hver ég er og af hverju þetta námskeið. Þú skilgreinir þitt why og fyrir hvern þú ert að læra.
Nemendurnir
Taugafjölbreyttir nemendur, hverjir þeir eru og hvað einkennir þá. Kortlagningin byrjar á styrkleikunum.
Að tilheyra
Skólatengsl, óbeinu skilaboðin sem grafa undan þeim, námsnúningur og Tengslakeðjan. Hvernig ég komst í háskóla án stúdentsprófs.
Námsumhverfið
Aðgengilegt vs. inngildandi umhverfi, rampaáhrifin, algild hönnun (UDL), þrepastuðningur og þættirnir sem studdu mig.
Hjálpartæki
Tólf flokkar með sýnikennslu, frá upplestri og tal-í-texta yfir í stýrifærni, skynvænt umhverfi og gervigreind. Quiz sem finnur flokkana fyrir þitt barn.
Einstaklingsmiðaður stuðningur
Kortlagning styrkleika og hindrana, einhverfa, PDA og umbreytingar, stuðningur eftir aldri, sjálfsmynd og kvíði.
Samstarfið og stóra myndin
Samskipti við skólann og kennara, samantekt kortlagningarinnar og næstu skref.
Þetta getur þú þegar þú hefur farið í gegnum það
Útskýrt Tengslakeðjuna
Og staðsett ákveðinn nemanda í henni, og vitað hvað hjálpar á hverjum hlekk.
Endurrammað „erfiða“ hegðun
Sem merki um hvar barn er statt í keðjunni, og brugðist við með trausti í stað krafna.
Nálgast lestur á nýjan hátt
Hjá barni með lestrarerfiðleika, með fimm meginreglum sem virka.
Þekkt PDA-prófíl og umbreytingavanda
Og beitt aðferðum sem létta álagið, heima og í skóla.
Tekið hjálpartækja-quizið
Og fengið flokkana sem passa þínu barni, með kennslumyndböndum um öll verkfærin.
Sett upp þitt eigið kerfi
Með Notion skapalóninu og uppsetningarleiðbeiningunum sem fylgja.
Kortlagt styrkleika og hindranir
Barnsins í skjali sem fylgir þér áfram, og fer beint í ráðgjöf ef þú vilt.
Talað máli barnsins við skólann
Með réttum orðaforða og tilbúnu tölvupóstsniðmáti.
Frá fólki sem hefur setið hjá mér
„Ég hef nýtt mér nokkur forrit sem þú fórst yfir fyrir mín börn og það hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif og þeim gengið betur með námið.“
Foreldri
„Fékk fullt af hugmyndum og verkfærum sem ég get byrjað strax í dag að nota.“
Fagaðili og foreldri
„Allt mjög skýrt. Það er hafsjór af allskonar hjálpartækjum svo það var frábært að fá lista yfir það sem þú hefur reynslu af að geti hjálpað.“
Foreldri
„Greinilega mjög fær í því sem þú ert að kynna og hefur þekkingu og upplifun sem fæstir kennarar hafa innan sinnar verkfærakistu.“
Kennari
„Þú býður upp á svo fallegt rými með nærveru þinni, safe space þar sem maður þorir að spyrja asnalegra spurninga!“
Þátttakandi á námskeiði
„Takk fyrir að gefa mér von og betri skilning á því hvernig ég var sem námsmaður í grunnskóla.“
Nemandi
„Ótrúlega peppandi að hlusta á þig, maður fer tvíelfdur út og tilbúinn að tækla vanda og fjölbreytileika!“
Þátttakandi á fræðslu
„Þú ert rödd beggja inn í skólakerfið, nemenda og foreldra, sem ég er ótrúlega þakklát fyrir.“
Foreldri
Tryggðu þér aðgang
Innifalið
- 40 stutt myndbönd sem þú horfir á þegar þér hentar
- Hjálpartækja-quiz sem bendir á verkfærin sem passa þínu barni
- Kortlagningarskjal sem byggist upp í gegnum námskeiðið
- Notion skapalónið með uppsetningarleiðbeiningum
- Tölvupóstsniðmát fyrir samskipti við skólann
- 45 mínútna kickoff með Jóhönnu, í persónu eða á Zoom
- Valkvætt certificate of completion
- Beinn hlekkur í ráðgjöf með kortlagninguna tilbúna, og forgangur þátttakenda
Verð
- Fullur aðgangur
- 27.990 kr.
- Hefur komið á námskeið hjá mér áður25% afsláttur
- 20.990 kr.
Kennarar og aðrir fagaðilar geta í mörgum tilfellum sótt um endurgreiðslu á námskeiðsgjaldinu í starfsmennta- eða endurmenntunarsjóð síns stéttarfélags. Kannaðu réttinn þinn hjá þínum sjóði — við sendum þér reikning sem hægt er að leggja fram.
Skilmálar
- Ekki er boðið upp á endurgreiðslur. Ef eitthvað kemur upp á færðu inneign á næsta námskeið.
- Afsláttur og fjárhagsstuðningur leggjast ekki saman við önnur kjör.
Hvernig þetta gengur fyrir sig
- Þú skráir þig hér og færð greiðsluupplýsingar í pósti.
- Aðgangurinn þinn opnast og þú skráir þig inn á harts.is.
- Kickoff með mér, í persónu eða á Zoom. Upptakan er send öllum.
- Þú ferð í gegnum einingarnar á þínum hraða, í hvaða röð sem er.
Kickoff
45 mínútur með mér, valkvætt
Þú velur tímann sem hentar á skráningarforminu. Upptakan er send öllum, líka þeim sem komast ekki.
- Fimmtudagur 19. nóvemberAkureyriStaðsetning tilkynnt fljótlega
- Þriðjudagur 24. nóvemberHörðuvallaskóli, Kópavogi
- Miðvikudagur 3. desemberÁ netinuÁ Zoom
Skráðu þig á námskeiðið
Fylltu út formið og ég set þig á listann. Þú færð staðfestingu og reikning í tölvupósti.
Upplýsingarnar fara beint til mín í tölvupósti. Vefsíðan geymir ekkert af þessu.
Það þarf að svara öllu nema því sem merkt er „má sleppa“.
Það sem fólk spyr mig mest að
- Þarf ég að mæta einhvers staðar?
- Nei. Námskeiðið er alfarið á netinu á þínum hraða. Kickoff-fyrirlesturinn er valkvæður, í persónu eða á Zoom, og upptakan er send öllum.
- Hvað hef ég aðganginn lengi?
- Lifetime access. Þú heldur aðganginum og færð allar uppfærslur á efninu.
- Get ég fengið endurgreitt?
- Nei, en ef eitthvað kemur upp á færðu inneign á næsta námskeið.
- Má barnið mitt taka þátt með mér?
- Já. Nemendur eru velkomnir, einir eða með foreldri.
- Ég hef ekki efni á námskeiðinu, hvað geri ég?
- Námskeiðið er styrkt af Menntamálaráðuneytinu og á skráningarforminu er reitur þar sem þú getur óskað eftir fjárhagsstuðningi, án útskýringa.
- Ég kom á námskeið í fyrra, fæ ég afslátt?
- Já, 25%. Merktu við það á forminu og ég sendi þér reikninginn með þínum kjörum.
- Er efnið á íslensku?
- Já, allt.
- Fæ ég staðfestingu á að hafa lokið námskeiðinu?
- Já, valkvætt certificate of completion með léttu lokaquizi.
Tryggðu þér aðgang
Skráningin er hér fyrir ofan. Þú færð staðfestingu í tölvupósti og reikning í kjölfarið.
